Við verðum öll að taka ábyrgð því við erum öll kennarar í daglegu lífi. Maður lærir tungumál með því að nota það. Samfélagið okkar hefur breyst og nú búa hér margir sem eiga annað móðurmál en íslensku.

Við hjálpum öðrum að læra með því að:

  • Tala íslensku við fólk sem er að læra.
  • Sýna þolinmæði og gefa fólki tíma.
  • Hlusta vel og endurtaka ef fólk skilur ekki strax.

Það er mikilvægt að við hvetjum alla í samfélaginu til að hjálpa fólki að læra íslensku.